
Að sigla í víkinni skilar engu samt virðast þau velja það Því tækifærin í tugum þau fengu Til að gera það sem fólkið þau bað. Því komum við hérna af krafti og þor Komin með stefnuskrá okkar Ætlum nú aldeilis að eyða þessum gor er lyktar eins og táfýlusokkar Til hægri stefnum við hrein og bein Hræðumst nú ekki þessa flokka Þau héldu að þau yrðu hér ein Í borginni alein að kokka Hér erum mætt, með okkar hvell Hendum þeim mörgum af stalli Veitum þeim þennan vanga skell Vakna þau í frjálsu falli Svo tökum við til og hreinsum út Hreinsum út spillingu þessa Okkur er sama þó setji á sig stút Þessar sem þykjast svo hlessa. Komið með okkur í þetta streð Þessa Borg ætlum við að þrífa Ykkur sem það er svo þvert um geð Munuð ekki með okkur drífa Já erum hér mætt, förum ei neitt Eigi fyrr en hreinsun er lokið Fallin af stalli og alls ekki eitt Sorry en þessu er lokið.


