[Spáðu í mig] kvöldin eru kaldlynd útá Nesi kafaldsbylur hylur hæð og lægð kalinn og með koffortið á bakinu kem ég til þín segjandi með hægð: spáðu í mig þá mun ég spá í þig spáðu í mig þá mun ég spá í þig. nóttin hefur augu eins og flugan og eflaust sér hún mig þar sem ég fer heimulega á þinn fund að fela flöskuna og mig í hendi þér spáðu í mig þá mun ég spá í þig spáðu í mig þá mun ég spá í þig. finnst þér ekki esjan vera sjúkleg og akrafjallið geðbilað að sjá ef ég bið þig um að flýja með mér til omdúrman þá máttu ekki hvá spáðu í mig þá mun ég spá í þig spáðu í mig þá mun ég spá í þig. og kvöldin eru kaldlynd út á Nesi kafaldsbylur hylur hæð og lægð kalinn og með koffortið á bakinu kem ég til þín segjandi með hægð spáðu í mig þá mun ég spá í þig spáðu í mig þá mun ég spá í þig. og kvöldin eru kaldlynd út á Nesi kafaldsbylur hylur hæð og lægð kalinn og með koffortið á bakinu kem ég til þín segjandi með hægð [powerful chorus] spáðu í mig þá mun ég spá í þig spáðu í mig þá mun ég spá í þig. [solo] [ending]


