
Skriðum frá landi á Skagagrunn skyldi það trollinu kenna. Ufsinn nú liggur þar munn við munn myndi í körin nú renna. Ufsinn sér hafði brugðið af bæ brögðótt er við hann sú glíma. Því skyldi trollið tekið úr sæ tókum í norður að stíma. Þorskurinn liggur ef æti er við því skyldi leitað að lóði. Við Ostahrygginn ekki var bið aðgerðin lituð af blóði Norður við Hraunið nóttin var dimm niðri þar liggja svörin. Hentum í tonnin hundrað og fimm hrúgaðist vel í körin. Siglum kátir leið í land á lygnum öldum drafnar. Okkur fylgi auðnaband alla leið til hafnar.

