
Flysjið og saxið lauk og hvítlauk smátt. Steikið í smá olíu á pönnu eða í potti þar til laukurinn er mjúkur. Bætið við tómatmauki, óreganói og paprikudufti. Látið allt steikjast í nokkrar mínútur. Bætið nautahakkinu út í og brúnið þar til það er fulleldað. Kryddið með smá jurtasalti. Bætið við sigtuðum tómötum, vatni og kraftteningi. Látið allt sjóða í að minnsta kosti 20 mínútur, gjarnan lengur ef tími gefst. Smakkið til með balsamediki, salti og pipar. Berið fram með nýsoðnu pasta, miklu af rifnum parmesanosti og ferskum kryddjurtum.

